Ég á í mjög góðu sambandi við þetta góðgæti og vil helst borða það með öllu. Grilluðum lax, kjúklingi eða fylltri papriku og góðu salati. Toppurinn er samt að bjóða upp á þetta hnossgæti með mexíkósku kjötbökunni hennar mömmu eða öðrum (ómerkilegri) mexíkóskum mat.
Mangósalsa
2016-01-05 23:26:57
Best með öllu!
Innihaldsefni
- 2 stór mangó
- 1-2 grænar paprikur
- Lítill rauðlaukur
- 1 búnt ferskt kóríander
- 1 msk hvítvínsedik
Leiðbeiningar
- Afhýðið mangóið og skerið í litla bita.
- Saxið paprikuna, rauðlaukinn og kóríanderið og blandið við mangómolanna.
- Setjið 1 msk af hvítvínsediki út í og blandið vel.
EatRVK https://eatrvk.is/
Pingback: Lax með hnetukurli og basil | EatRVK