Ég elska ítalskan mat og sérstaklega kjötbollur. Ég hef reglulega breytt uppskriftinni en hér er hún loks fullkomnuð. Bragðmikil með vott af basil, sítrónuberki og furuhnetum. Eintóm sæla – fitulitlar og próteinríkar kjötbollur!
Gott rauðvín er einnig must! Með þessu er æðislegt að hafa gott ítalskt vín á borð við Mezzacorona Merlot. Þá sjaldan að maður finnur fínt rauðvín á 1.699 kr!
Ítalskar kjötbollur
2016-03-21 10:58:36
Dásamlegar bragðmiklar kjötbollur í hollari kantinum. Um að gera að gera tvöfaldan skammt og frysta þessi bjútí.
Innihaldsefni
- 500 gr gott nautahakk - helst beint frá bónda
- 1 dl rasp - ég nota heimagert súrdeigsrasp en gott rasp fæst t.d. í Sandholtsbakaríi
- 1 laukur - mjög smátt saxaður (annars loða bollurnar illa saman)
- 1/2 geiralaus hvítlaukur
- 1/2 dl saxaðar furuhnetur
- 1 msk sítrónubörkur (ég læt sítrónuna örstutt í sjóðandi vatn - og passa að nota ekki hvíta hluta barkarins)
- 1 dl fersk basilika söxuð
- 1 stórt egg
- 1 msk ítölsk kryddblanda
- 1 dl parmesanostur
- Salt
- Pipar
- Heilhveiti
- Ólívuolía
Leiðbeiningar
- Saxið laukinn smátt og merjið hvítlaukinn í hvítlaukspressu. Setið í skál ásamt hakkinu, basilikunni, parmesanostinum, sítrónuberkinum, brauðraspinu, furuhnetunum og kryddinu. Saltið og piprið.
- Setjið eggið út í og hnoðið vel saman með höndunum.
- Mótið litlar bollur og veltið þeim upp úr heilhveiti svo þær loði betur saman. Setjið bollurnar á bökunarpappír og sáldrið örlítilli ólívuolíu yfir ef vill.
- Bakið bollurnar í miðjum ofni á 180 gráðum í 20-30 mínútur, eftir stærð.
Athugasemdir
- Borðið með góðri pastasósu, spaghettí ef vill og rifnum parmesanosti. Mér finnst líka fínt að sleppa pastanu og vera með salat eða grillað eggaldin í staðinn. Klettasalat með piccolotómötum, rauðlauk, ferskum mozzarella og sítrónuolíu finnst mér best með.
- Ég elska þessa uppskrift því mér leiðist svo að steikja bollurnar - það er líka mun óhollara.
EatRVK https://eatrvk.is/