Þetta gúmmelaði er upphaflega frá Ítalíu og Portúgal. Það er til í mörgum útgáfum og auðvelt er að leika sér með hráefnin. Það sem er frábært við þennan súkkulaðirétt er hve einfaldur hann er og bragðgóður. Þetta getur hreinlega ekki klikkað, ég meina hver elskar ekki súkkulaði? Og svo geymist hann vel svo hægt er að gera hann 1-2 dögum áður en borða á þessa dásemd. Það er mjög gaman að gera minni útgáfu og koma með í matarboð, svo er þessi dásamlega súkkulaði „pulsa“ svo falleg þegar hún er skorin – svolítið eins og að opna fallega innpakkaða gjöf 😉
Mynd Íris Ann Sigurðardóttir/mbl.is
Sturlað súkkulaði salami
2017-03-06 20:25:04
Innihaldsefni
- 200 g gott dökkt súkkulaði
- 85 g smjör
- 80 g sykur
- 1/2 tsk. vanillu essens
- 1 stórt egg og ein eggjarauða
- 180 g gott kex, mér finnst geggjað að nota frá LU Bastogne duo, með karmellu og möndlum
- 1/2 bolli þurrkuð trönuber eða aðrir þurrkaðir ávextir, saxaðir
- 1/2 bolli pistasíur saxaðar gróft, eða aðrar hnetur
- Flórsykur til að skreyta
Leiðbeiningar
- Bræðið súkkulaðið og smjör í skál yfir vatnsbaði og setjið svo til hliðar.
- Blandið saman með handþeytara vanilludropum, sykri og eggi þar til blandan er fallega ljósgul.
- Brjótið kexið og bætið saman við eggið, hellið svo hnetum og þurrkuðum ávöxtum saman við.
- Blandið súkkulaðinu saman við varlega með sleif. Setjið blönduna á plastfilmu og rúllið upp í pulsu með því að snúa vel upp á endana. Setjið í kæli þar til gleðin hefur harðnað.
- Stráið flórsykri yfir og nuddið vel á sívalninginn og skerið í sneiðar og njótið með góðu rauðvínsglasi eða kaffibolla.
Athugasemdir
- Ef kexið er sætt er gott að setja örlítið minna af sykrinum.
EatRVK https://eatrvk.is/