Þessi sósa er algjört dúndur og hentar einnig vel sem köld grillsósa með mat eða sem ídýfa með grænmeti. Það er einnig geggjað að setja hana í grillaðar kartöflur og skreyta með smá vorlauk. Það er skylda að prufa þessa í sumar;)
Fetaosta-grillsósa eða ídýfa
2017-06-25 19:28:51
Dásamleg sósa sem einnig er geggjuð sem ídýfa með grænmeti í partýið eða saumaklúbbinn. Okkur þykir hún sértaklega góð í grillaðar kartöflur
Innihaldsefni
- Sósan
- 180 g grísk jógúrt
- 100 g sýrður rjómi
- 1 vorlaukur, saxaður
- 120 g hreinn fetostur (kubbur), mulinn
- Salt og pipar eftir smekk
Leiðbeiningar
- Öllu blandað vel saman og geymt í kæli þar til hennar skal njóta.
- Gott að skreyta með vorlauk.
EatRVK https://eatrvk.is/