Nú þegar vonandi fer að sjást í sól er þetta salsa fullkomið enda er það eins og sól í skál, ávaxtaríkt, ferskt og gott. Það er einfallt að gera og passar með nánast öllu og jafnvel eitt og sér. Sérstaklega er gott að borða þetta með til dæmis BBQ-kjúllanum eða kjúklingaspjótunum hér á síðunni. Það er jafnvel svo gott að ég borða það eitt og sér í nesti.
Mangó- og ananas-salsa
2018-05-28 17:51:28
Innihaldsefni
- 2 söxuð mangó
- 1 bolli saxaður ananas
- 1/3 bolli söxuð rauð paprika
- 1/4 bolli saxaður vorlaukur
- 1/4 bolli saxað kóríander
- Safi úr ½ appelsínu
- Safi úr ½ lime
- 1 tsk. rauður chili, saxaður, fræhreinsaður ef þið viljið ekki mikinn „sólar“-hita
Leiðbeiningar
- Allt saxað og sett í skál, látið standa á borði í 30 mínútur áður en þess á að njóta
EatRVK https://eatrvk.is/