Ég les matreiðslubækur eins og spennusögur. Jii, hvaða krydd skyldi koma í þetta partý? Hvað er í sósunni?? Er ekkert kóríander?! Hringið í nágrannann, það er ekki til hveiti! En án gríns þá á ég erfitt með að fara eftir uppskriftum frá öðrum og sæki mér gjarnan innblástur frekar en ítarlegar uppskriftir og tilmæli. Ég rakst á uppskrift af túnfisktortillum um daginn og gat ekki á mér setið að henda í eina tilraun. Útkoman var dásamleg! Eiginlega bara fullkomin! Mexíkóskur matur er í sérlegu uppáhaldi hjá mér og þessi uppskrift er komin í topp 10.
Quesadillas með túnfisk, kóríander, maís og láperu
2016-02-24 23:03:09
Bragðmikill og djúsí partíréttur eða fullkominn kvöldmatur með salati, salsasósu og sýrðum rjóma. Börnin elska þennan rétt.
Innihaldsefni
- 1 pakki heilhveititortillur
- 1 dós túnfiskur í vatni
- 1 dós túnfiskur í olíu
- 1/2 laukur
- 1 lúka ferskt kóríander (ef vill)
- 1 tsk límónusafi
- 2 dl grískt jógúrt
- 1 dós 10% sýrður rjómi
- 1 rauð paprika
- 1/2 tsk mexíkósk kryddblanda t.d. frá Pottagöldrum
- 1/3 tsk Chili Explosion (er í kvörn - fæst í Bónus)
- 1 poki rifinn ostur
- 3 dl maís án viðbætts sykurs, t.d. frosinn frá Coop (fæst í Nettó)
- Olía til steikingar
- Salat ef vill, s.s. spínat
- Sýrður rjómi og salsasósa sem meðlæti
Leiðbeiningar
- Hellið vökvanum af túnfisknum og setjið hann í skál ásamt jógúrtinu, sýrða rjómanum, límónusafanum og kryddinu.
- Hellið vatninu af maíisnum eða setjið hann stutt í sjóðandi vatn ef hann er frosinn.
- Kjarnhreinsið og saxið paprikuna.
- Saxið laukinn og kóríanderið.
- Setjið maísinn, paprikuna, kóríanderið og laukinn út í túnfiskblönduna.
- Bætið ostinum út í skálina og hrærið vel.
- Setjið 1/2 msk af olíu á pönnu og kveikið undir (miðlungs hiti).
- Setjið 1 tortillaköku á pönnuna og setjið vel af salatinu ofan á og lokið með annarri köku.
- Steikið í 2 mín á hvorri hlið uns kökurnar eru gylltar, osturinn bráðinn og salatið gegnheitt.
- Skerið með pizzaskera og berið fram með salati, láperu, fersku kóríander, salsa og sýrðum rjóma.
EatRVK https://eatrvk.is/