Ég einfaldlega elska þessa súpu! Hún er allt sem ég vil að súpa sé, ódýr, bragðgóð, einföld, saðsöm og hægt að frysta og eiga fyrir köld vetrarkvöld til að fá hlýju í kroppinn – ásamt því að vera vegan. Ég hef gert þessa fyrir afmæli, sem aðalrétt og sem forrétt og alltaf gleður hún. Kannski er það gyllti liturinn sem minnir á sól eða sand sem veitir manni þessa extra hlýju.
Hlýleg og góð vetrarsúpa
2016-11-09 22:27:36
Matarmikil og dásamleg súpa.
Innihaldsefni
- 1 msk matarolía
- 1 púrrulaukur, skorin smátt
- 2-3 hvítlauksrif
- 1 - 1 1/2 tsk grænt karrýmauk
- 1/4 tsk cumin
- 1 tsk turmarik
- 1/2 tsk kóríander krydd
- 2 lárviðarlauf
- 1 stór kartafla
- 1 stór sæt kartafla
- 200 gr. rauðar linsubaunir
- 1 líter vatn (meira ef hún er of þykk)
- 3-4 grænmetisteningar
- 1 dós kókosmjólk
- salt og pipar
- cayennepipar eftir smekk
- 3 msk sítrónusafi
- Ristaðar kókosflögur
- Kóríander , saxað
- Lime í sneiðum
Leiðbeiningar
- Sjóðið linsurnar samkvæmt leiðbeiningum og setjið til hliðar
- Laukurinn settur í pott ásamt olíu og steikt saman við lágan hita
- Skrælið kartöflurnar og skerið í bita, bætið þeim saman við laukinn ásamt rest af hráefnum og látið malla þar til kartöflurnar eru orðnar mjúkar
- Takið lárviðarlaufin úr súpunni
- Þegar kartöflurnar eru orðnar mjúkar er töfrasproti eða kartöflustappari notaður og allt maukað vel niður
- Smakkið til og bætið við kryddi ef þið viljið
Athugasemdir
- Gott er að hafa auka vatn með grænmetistening tilbúið ef þið viljið hafa súpuna þynnri, eða setja meiri kókosmjólk. Berið fram með ristuðum kókosflögum, kóríander og lime sneiðum.
EatRVK https://eatrvk.is/