Ég var einu sinni stödd í dásamlegu brúðkaupi þar sem boðið var upp á grillaðan humar. Ég bjóst við hinum klassíska hvítlaukshumri en þar fékk ég kóríanderhumar og eftir það hef ég sjaldan notað hvítlauk á humar. Mér finnst kóríander passa einstaklega vel með humri og hann fær að njóta sín betur. Því hef boðið uppá þennan rétt í mörgum matarboðum og hann aldrei klikkað og margir eru hissa á hve fullkomin samsetning þetta er.
Kóríander humar
Fyrir 2-3 í aðalrétt.
- 1 kg humar í skel (snyrtur og klofinn)
- 200-300 gr ósaltað smjör
- 1-2 bolli kóríander (saxað)
- Salt og pipar eftir smekk
- Þegar þið eruð búin að hreinsa og skera humarinn raðið þið honum á álbakka.
- Bræðið smjörið og kryddið með salti, pipar og bætið við kóríander. Setjið 1-2 teskeið af smjöri í hvern hala og geymið afganginn af smjörinu.
- Grillið við góðan hita í 2-3 mínútur eða þar til humarinn er tilbúinn. Þið getið grillað humarinn í ofni við 200°C í 3-4 mínútur.
- Setjið restina af smjörinu yfir humarinn og njótið.
Með þessu er gott að gera cous cous með uppáhalds grænmetinu þínu, furuhnetum og hreinum fetaosti fyrir þá sem elska hann.