Ég er að reyna venja mig á að fá mér hollan og góðan drykk á morgnana, þessi drykkur minnir á sjeik og því gott að gera hann á morgnanna, og þá upplagt að bæta við einu skoti af expresso fyrir kaffifíkilinn, í hádeginu, kvöldin eftir mat fyrir börnin eða jafnvel sem kokteil fyrir gestina og bæta við einu skoti af vodka, minnir þá á vegan hvítann rússa.
Kókos og möndlu drykkur
2016-01-10 13:44:53
Syndsamlega góður og hollur drykkur
Innihaldsefni
- 1 bolli klaki
- 1 bolli kókosmjólk, ég notaði Coconut dream
- 2 msk möndlusmjör
- 3 ferskar döðlur
- 1 msk kókos
Leiðbeiningar
- Allt sett í blandara og látið blandast vel saman og njótið...
EatRVK https://eatrvk.is/