Kjötzza – brauðlaus pizza

20160417_184649-1Ég elska ítalskan mat en eins og margir mætti ég alveg minnka við mig kolvetnin. Því fékk ég fiðring í magann þegar ég rakst á uppskrift frá þokkagyðjunni Nigellu af brauðlausri pizzu sem hún kallar kjötzzu. Ég breytti uppskriftinni örlítið eftir eigin smekk og útkoman var æðisleg! Meira að segja dóttir mín borðaði vel af matnum án þess að ákalla skyr í öðrum hverjum bita.

Kjötzza með ferskum mozzarella
Frábær matur fyrir 4-6. Gott er að hafa ferskan parmesan á kantinum, hvítlauksolíu og salat.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 500 gr gott nautahakk beint frá bónda (t.d. frá Matarbúrinu út á Granda)
  2. 3 msk rifinn parmesanostur
  3. 3 msk brauðmylsna eða gróft haframjöl
  4. 3 msk söxuð basilika
  5. 2 egg léttþeytt
  6. 1/2 hvítlaukur pressaður
  7. Salt og pipar eftir smekk
  8. Olía til að smyrja formið
  9. 400 gr dós af niðursoðnum tómötum (með hvítlauk og basil)
  10. 1 tsk pizzakrydd t.d. frá Pottagöldrum
  11. 1 mozzarellakúla (125 gr)
  12. 1 bolli rifinn ostur
  13. Nokkur basilíkulauf
  14. Furuhnetur
  15. Meðlæti
  16. Hvítlauksolía
  17. Konfekttómatar
  18. Klettasalat
  19. Parmesan
  20. Sítróna
Leiðbeiningar
  1. Blandið með höndunum saman í skál hakki, parmesanosti, brauðmylsnu eða höfrum, basiliku og eggjum.
  2. Rífið út í eða fínsaxið hvítlauk og saltið og piprið.
  3. Blandið saman en varist að ofhræra svo kjötið fái ekki þunga og klessta áferð.
  4. Smyrjið grunnt kringlótt bökunarform, um 28 sm í þvermál, og skellið kjötinu í það.
  5. Þrýstið blöndunni létt niður með fingrunum svo hún þeki botninn eins og pítsubotn.
  6. Gætið þess að hella eins miklu af vökvanum og hægt er úr dósinni með niðurskornu tómötunum, blandið svo pizzakryddi, salti og pipar saman við þá og smyrjið maukinu létt yfir kjötgrunninn.
  7. Dreifið rifnum osti yfir, raðið mozzarellasneiðum ofan á og setjið í 220°C heitan ofn í 20-25 mínútur en þá ætti kjötið að verða gegnsteikt og stíft og mozzarellaosturinn bráðnaður. Það er líka gott að setja 2 msk af furuhnetum ofan á áður en hún er bökuð.
  8. Takið kjötzzuna úr ofninum og látið hana bíða í 5 mínútur.
  9. Skreytið með basilíkulaufum og ferskum tómötum.
Athugasemdir
  1. Mér finnst geggjað að hafa ferskt klettasalat og tómata með og raspa örlítið af parmesan og sítrónuberki yfir.
Byggt á Nigellu
Byggt á Nigellu
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *