Ég er búin að vera með súpuæði síðustu vikur og hollar, djúsí og ódýrar súpur hafa verið í miklu uppáhaldi. Þessi súpa er í fyrsta sæti sem stendur, börnin mín elska hana, hún er stútfull af hollustu og mjög saðsöm. Svo er auðvitað snilld að taka afganga með sér í vinnuna eða jafnvel gera góða pastasósu. Það sem gerir þessa súpu sérstaklega góða er að grænmetið er ofnbakað áður en það er sett í súpuna og við það verður bragðið af grænmetinu sértaklega gott. Með þessari súpu hef ég brauðið góða sem er hér á síðunni. Þar sem mánudagar er oft kallaðir kjötlausir dagar þá ætla ég að reyna setja inn hollar og góðar grænmetis- og/eða vegan-uppskrifitir á mánudögum næstu vikur, sérstaklega í desember þar sem jólaboð og hlaðborð tröllríða öllu og maginn oft kominn í ólag á sjálfum jólunum.
- 1 hvítlaukur
- 1 búnt basil, um einn bolli
- 2 rauðlaukar, skornir í bita
- 2 tsk hrásykur
- 1 kg tómatar, skornir í báta
- 200 ml grænmetissoð
- 1/3 bolli kókosmjólk, meira ef þið viljið
- 1/2-1 tsk reykt papríkuduft
- Klípa af cayennepipar
- Ólífuolía
- Salt og pipar eftir smekk
- Hitið ofninn í 200 gráður.
- Takið hýðið af hvítlauknum, skerið rauðlaukinn í bita, skerið tómata í báta, takið basil laufin frá en saxið basilstilkana og bætið þeim saman við í eldfast mót.
- Stráið salti og pipar yfir ásamt hrásykrinum og ólífuolíunni.
- Setjið mótið í ofninn og látið malla í um 20-30 mínútur eða þar til tómatar eru orðnir vel mjúkir.
- Setjið grænmetið í pott og notið töfrasproti til að mauka vel saman.
- Bætið soðinu og papríkuduftinu saman við og látið malla í um 5 mínútur.
- Bætið kókosmjólkinni saman við og hrærið vel í.
- Bætið við salti og pipar eftir smekk.
- Saxið basillaufblöðin og bætið helmingnum saman við og setjið rest í skál til að bera fram með súpunni.
- Njótið.
- Maðurinn minn setur alltaf harðsoðið egg í sínar tómatsúpur sem er dásamlega gott en ekki nauðsyn. Berið fram með kókosmjólk, basil og góðu brauði.
Mikið hljómar þessi vel. Hlakka til að prófa.
Hvernig grænmetissoð notar þú? Vatn og tening eða?
Ég nota hvort sem er, en í þetta sinn notaði ég frá Sollu;)