Þessi grautur er frábær sem millimál, kvöldnasl eða morgunmatur. Chia fræin eru mjög næringarík og stútfull af hollri fitu og þú finnur lítið fyrir „slím“ áferðinni sem stuðar marga í þessari samsetningu.
Súkkulaði chia-grautur
2016-02-28 10:10:47
Frábært millimál eða kvöldnasl.
Innihaldsefni
- 4 dl af súkkulaði möndlu- eða hrísmjólk frá Rice Dream (fæst í Bónus)
- 1 vel þroskaður banani
- 2 msk lífrænt hnetusmjör
- 2 msk gojiber
- 2 msk kókosmjöl eða flögur
- 3 msk chiafræ
- 2 klakar
- Ósætt kakó til að skreyta með
Leiðbeiningar
- Setjið öll innihaldsefnin nema kakóið í blender og blandið uns kekkjalaust.
- Gott er að kæla grautinn í 20 mínútur eða svo áður en hann er borðaður.
- Þessi grautur er ekki eins "slímugur" og margir chiagrautar og því hentar hann jafnvel þeim sem fíla ekki fræin hollu.
- Stráið kakó yfir.
EatRVK https://eatrvk.is/