Klassísk kjötsúpa er matarmikil og full af grænmeti og kjöti. Súpan þarf ekki að kosta mikið en er alltaf jafn vinsæl hjá öllum aldurshópum. Ég notaði tækifærið í Minni sóun átakinu mínu þegar ég sá lambalærissneiðar á tilboði og skellti í kjötsúpu. Ég kaupi alltaf lambalærissneiðar í stað hefðbundins súpukjöts þar sem mér finnst það oft of feitt. Ég fékk svo bæði rófur og gulrætur á tilboði vegna þess hversu stutt var í fyrningu á þeim svo ég eldaði súpu handa 5 fullorðnum fyrir 2000 krónur! Svo er súpan alltaf bara betri daginn eftir.
Klassísk kjötsúpa
2016-04-03 23:18:05
Serves 4
Innihaldsefni
- 1 - 1,5 kg lambalærissneiðar
- 3 lítrar vatn
- Kjötkraftur - lífrænn án msg - 2 teningar
- Grænmetiskraftur - lífrænn án msg - 2 teningar
- 2 dl súpukryddjurtir
- 4 stórar gulrætur
- 3 stórar kartöflur
- 100 gr blómkál
- 2 vænar rófur
- 1 dl hrísgrjón
- Salt
- Pipar
- 1 msk Herbes de Provence krydd
- 1 dl söxuð fersk steinselja
Leiðbeiningar
- Setjið kjötið í pott ásamt köldu vatni.
- Hitið rólega að suðu og fleytið froðu ofan af ef kjötið er feitt.
- Skerið grænmetið í litla bita og bætið út í. Látið malla við miðlungs hita í 20 mínútur.
- Setjið teningana út í ásamt kryddinu, hrísgrjónunum og súpujurtunum.
- Setjið lok á pottinn og látið malla í að minnsta kosti 30 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt og kjötið meyrt.
- Saltið og piprið eftir smekk og stráið ferskri steinseljunni yfir.
- Mér finnst ómissandi að bjóða upp á kalda mjólk og súrdeigsbrauð með.
EatRVK https://eatrvk.is/