Þetta er langbesta bláberjasultan að mínu mati, hún er hreinlega dýrðleg með öllu! Hún er til dæmis snilld með paté, á vöfflurnar, kjötið og pönnukökurnar. Ilmurinn í eldhúsinu þegar hún er að mallast í pottinum er hreinn unaður og það er ekki síðra að borða hana.
Krydduð bláberjasulta
2016-08-13 11:47:59
Dásamleg bláberjasulta sem kryddar lífið.
Innihaldsefni
- 750 gr bláber
- Safi úr einni sítrónu
- 800 gr sykur
- 1/4 tsk negull
- 1/4 tsk kanill
- 1/4 tsk allrahanda krydd
- 2 anis stjörnur
- 2 msk sultuhleypir
- 2 msk sykur
Leiðbeiningar
- Setjið bláber og sítrónusafa í pott og látið sjóða í 5 mínútur.
- Takið pottinn af hellunni á meðan sykrinum og kryddi er blandað saman við.
- Setjið pottinn aftur á helluna og látið malla þar til sykurinn er alveg uppleystur.
- Blandið saman sultuhleypi og sykri og stráið yfir blönduna og látið malla aðeins lengur eða þar til allt hefur blandast vel saman.
- Hellið í tandurhreinar krukkur og lokið strax
Athugasemdir
- Í staðinn fyrir sultuhleypi og sykur má nota sultusykur. Úr þessari uppskrift fást 4-5 krukkur.
EatRVK https://eatrvk.is/