Þetta salat er skemmtileg tilbreyting frá túnfisk og rækjusalati. Best er að borða það með góðu hrökkbrauði eða setja það í pítu ásamt spínati eða öðru salati.
Ferskt baunasalat
2016-01-10 14:03:17
Einfallt, gott, ferkst og hollt salat sem kemur á óvart.
Innihaldsefni
- 1 dós hvítar baunir eða kjúklingabaunir
- 1 sellerístöngull saxaður smátt
- 1/2 rauðlaukur saxaður smátt
- 1/2 rauð papríka söxuð smátt
- 1/2 krukka vegan majones eða venjulegt
- Kóríander eftir smekk, ég set um 1/2 bolla, saxað
- salt og pipar
- 1/2 tsk dill, má sleppa
- 1 msk sítrónusafi, má sleppa
Leiðbeiningar
- Stappið baunirnar og setjið í skál.
- Söxuðu grænmetinu, kóríander og majonesi er hrært saman við.
- Kryddið eftir smekk.
Athugasemdir
- Mæli með að þið gerið hrökkbrauðið okkar sem er hér á síðunni og hafið það með salatinu, fullkomin samsetning! Ég tala nú ekki um í sólinni í sumar með gott íste eða kallt hvítvín!
EatRVK https://eatrvk.is/