Hnetusmjörs- og súkkulaði-„nicecream“

„Nicecream“ eða rjómalaus ís gerður úr frosnum ávöxtum hefur notið mikilla vinsælda upp á síðkastið. Uppistaðan er yfirleitt frosnir bananar þó vissulega megi nota aðra ávexti. Hér kemur ein dúndurgóð uppskrift af hollari ís sem svíkur þó engan. Svo er bara um að gera að prufa sig áfram með ávexti, hnetur og sætu.12645080_10153951626594312_5460011569966117024_n

Hnetusmjörs- og súkkulaði-"nicecream"
Serves 2
Sykurlaus bananaís fyrir tvo.
Skrifa umsögn
Prenta
Innihaldsefni
  1. 3 frosnir vel þroskaðir bananar. Það er mikilvægt að þeir séu vel þroskaðir svo ísinn fái mjúkt og sætt bragð.
  2. 1 msk hnetusmjör
  3. 1 msk hreint ósætt kakó
  4. 15 dropar kókos-, vanillu- eða karamellustevía
  5. 3 mjúkar döðlur ef vill
  6. 1-2 dl kókosmjólk til drykkjar (án viðbætts sykurs eða heimagerð)
  7. Góðgæti til að toppa með, svo sem kókosflögur, kakónibbur, hnetur og kínóapuffs (fæst í Nettó)
Leiðbeiningar
  1. Skelltu öllu gúmmelaðinu í öflugan blender eða matvinnsluvél. Þú gætir þurft að stoppa vélina inn á milli og skafa meðfram hliðunum. Ekki örvænta þó þetta taki nokkrar mínútur. Afraksturinn er hreinn unaður! Ef illa gengur skaltu prufa næst að leyfa banananum aðeins að þiðna eða skera þá í minni bita áður en þú frystir þá.
Athugasemdir
  1. Jarðaberjaís er ekki síðri. Þá nota ég 2 frosna banana, 4-6 dl af frosnum jarðaberjum (og/eða bláberjum), 2 dl af kókosmjólk og hindberjastevíu!
EatRVK https://eatrvk.is/

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *