Þessir pinnar eru mjög frískandi, sætir og góðir. Við dóttir mín stútum stundum tveimur í röð ef við erum í stuði. Það besta er að þeir eru mjög hollir og innihalda örfáar hitaeiningar en mikla hamingju! Ekki skemmir fyrir að þeir taka í alvörunni bara eina mínútu í vinnslu fyrir utan frystitímann.
Íspinnar á 1 mín!
2016-02-13 19:28:18
Þessir klikka aldrei. Börnin og ég elskum þá.
Undirbúningstími
1 min
Innihaldsefni
- 200 ml kókosmjólk (ég nota Coconut Dream)
- Hindberja stevía (ég nota Via Health)
- Ávextir - ég notaði bláber og hindber
Leiðbeiningar
- Setjið 12 dropa af stevíu ut í mjólkina og hristið.
- Hellið hvert pinnamót 70% fullt.
- Setjið berin í mótið svo það sé fullt.
- Stingið lokinu á og setjið inn i frysti.
Athugasemdir
- Íspinnamótin fékk ég í IKEA fyrir einhverja hundraðkalla. Þessir pinnar eru æðislegir í barnaafmæli.
EatRVK https://eatrvk.is/