Ég er með æði fyrir þessari bláberjahamingjubombu og drekk hana alla morgna um þessar mundir. Drykkurinn er ekki síðri en bláberjasjeik í ísbúð, ég segi ykkur það satt! Nammigott kallar dóttir mín hann. Og ekki lýgur barnið!
Kókos- og bláberjasæla
2016-03-21 13:37:10
Einstaklega bragðgóður og orkugefandi drykkur.
Innihaldsefni
- 1 vel þroskaður, stór frosinn banani
- 1 msk chiafræ
- 2 msk hemp prótein ef vill
- 2 dl bláber
- 2 dl vatn
- 2-3 dl kókosmjólk úr fernu
- 4 dropar hindberja Stevía frá Via Helth t.d. ef vill
- 4 klakar
Leiðbeiningar
- Allt sett í blender og blandað uns kekkjalaust!
EatRVK https://eatrvk.is/